
Jósúabók
Ritið er kennt við Jósúa sem var eftirmaður Móse. Í fyrsta hluta ritsins eru frásagnir af innrás Ísraelsmanna í Kanaansland undir forystu Jósúa. Innrásin var gerð samkvæmt fyrirmælum Drottins sem grípur oft, beint og óbeint, inn í atburðarásina. Í frásögninni er lögð áhersla á hið yfirnáttúrlega.
Annar hluti ritsins segir frá skiptingu landsins milli ættbálkanna og fór hún fram með hlutkesti samkvæmt fyrirmælum Drottins (13.1-13.7). Í þriðja hluta (23. og 24. kafla) eru tvær kveðjuræður Jósúa þar sem hann fær þjóðina til að skuldbinda sig til að hlýða Drottni. Síðari ræðan tengist endurnýjun sáttmálans í Síkem.
Ritinu lýkur síðan með stuttri frásögn af dauða Jósúa og greftrun. Einn kunnasti hluti ritsins er frásögnin af falli Jeríkó (6. kafli).
Skipting ritsins
1.1-12.24 Landið unnið
13.1-22.34 Landinu skipt
13.1-13.33 Landið fyrir austan Jórdan
14.1-19.51 Landið fyrir vestan Jórdan
20.1-20.9 Stofnun griðaborga
21.1-21.45 Borgir Levíta
22.1−22.34 Um guðsdýrkun
23.1−23.16 Kveðjuræða Jósúa
24.1−24.33 Þingið í Síkem
Praise
