
Jóhannesarguðspjall
Monthly Membership
Cancel anytime!
Memberships will renew every month
One credit every month on renewal
You can spend 1 credit every month to get an audiobook
Jóhannesarguðspjall er yngst guðspjallanna og hefur vissa sérstöðu meðal þeirra. Það er skylt öðrum Jóhannesarritum í Nýja testamentinu, Jóhannesarbréfunum og Opinberunarbókinni. Guðspjallið hefst á þeim boðskap að Jesús sé „logos", hið skapandi orð Guðs, hans eilífa hugsun og speki í heiminn komin sem maður, hold (1.14). Hugtök eins og „líf" og „eilíft líf" og táknmyndir á borð við „vínvið" og „brauð lífsins" einkenna framsetningu guðspjallsins. Jesús er Guðs sonur, frelsarinn er veitir öllum líf (20.31). Ræður Jesú, kenning og bænir setja svip sinn á guðspjallið og að margra dómi er það áhrifamest guðspjallanna. Í 13.–17. kafla er lýst hinu nána kærleikssambandi Jesú og lærisveinanna. Hann hughreystir þá nóttina sem hann var svikinn og heitir þeim „hjálpara", sínum heilaga anda, er veita muni þeim leiðbeiningu og styrk (15.26). Tákn Jóhannesar guðspjallamanns er örninn.
Skipting guðspjallsins
1.1−1.18 Formáli: Jesús er eilíft orð Guðs sem gerðist maður
1.19−1.52 Vitnisburður Jóhannesar skírara
2.1−12.50 Starf Jesú í Galíleu og Jerúsalem, tákn, ræður, deilur
13.1−17.36 Jesús býr lærisveina sína undir pínu sína og dauða
13.1−13.30 Fótaþvotturinn, svik Júdasar
13.31−16.33 Skilnaðarræða Jesú
17.1−17.26 Fyrirbæn Jesú − Æðstaprestsbænin
18.1−19.42 Pína Jesú, dauði og greftrun (píslarsaga Jóhannesar)
20.1−21.25 Upprisa Jesú
Praise
Ratings & Reviews
Review guidelines0% of listeners recommend it of readers recommend it
Be the first to rate this audiobook Be the first to rate this book
No one has rated or reviewed Jóhannesarguðspjall yet. Listened to it? Would you recommend it? No one has rated or reviewed Jóhannesarguðspjall yet. Read it? Would you recommend it?
Rate and review this book, just like in the Downpour app.
Listened to this one? Read this one?
Share what you thought and help others decide.
Sign in to write a reviewYour account can't post reviews right now.
No written reviews yet
0 listeners have rated this audiobook, but no one has written about it yet. Tell others what you thought.
Sign in to write a review