Grímsævintýri

Grímsævintýri


Unabridged

Sale price $2.60 Regular price$3.99
Save 35.0%
Quantity:
Add to wishlist
window.theme = window.theme || {}; window.theme.preorder_products_on_page = window.theme.preorder_products_on_page || [];

Hér fara æviminningar hundheppna hamingjudýrsins Gríms Fífils. Hann var fuglaveiðihundur sem veiddi aldrei fugla þótt hann gerði stundum flugu mein. Besta og Fúli völdu hann sérstaklega upp úr hvolpabæli úti í bæ og hann bjó með þeim og krílunum alla sína hundstíð. Grímur Fífill fór í hundaskóla en það átti ekki við hann. Samt kenndi Grímur Bestu og Fúla miklu meira en þeim tókst nokkru sinni að kenna honum. Góðir vinir ganga ekki endilega allir á tveimur fótum.

Grímur Fífill fól Kristínu Helgu Gunnarsdóttur að rita ævisögu sína, enda er hún með áratuga reynslu í að tala við hunda. Síðan bað hann Halldór Baldursson að teikna myndirnar því hann kann líka hundamál.


„Það er frásagnarmáti bókarinnar sem gerir hana eftirminnilega og sérstaklega skemmtilega. Í togstreitunni á milli hundmiðjaðrar frásagnar Gríms Fífils á atvikum í lífi sínu og skilnings lesandans á því sem raunverulega átti sér stað lifna æviminningarnar við og verða að ævintýrum."

  • Úr umsögn dómnefndar Fjöruverðlaunanna

„Mér finnst ég skilja hunda betur!"

  • Kristján Kristjánsson / Föstudagsþátturinn, N4