Nehemíabók

Nehemíabók


Unabridged

Sale price $1.30 Regular price$2.00
Save 35.0%
Quantity:
Add to wishlist
window.theme = window.theme || {}; window.theme.preorder_products_on_page = window.theme.preorder_products_on_page || [];

Ritið sem kennt er við Nehemía hefur upphaflega verið hluti Esrabókar. Greint er frá för Nehemía til Jerúsalem en þangað var hann sendur af Persakonungi sem landstjóri í Júda. Síðan er fjallað um endurreisn múra Jerúsalem. Þá er sagt frá guðsþjónustu sem haldin var í borginni á laufskálahátíðinni en hún hafði verið endurreist af Júdamönnum. Í lýsingu á þessari guðsþjónustu koma fram nokkur höfuðatriði í guðsþjónustum Gyðinga í samkunduhúsum þeirra. Í síðasta hluta ritsins er fjallað um guðsþjónustuna og ýmsar aðgerðir til að hreinsa líferni safnaðarins. Áberandi einkenni ritsins er í hve ríkum mæli Nehemía setur traust sitt á Guð og hversu oft hann biður til hans.

Skipting ritsins

1.1-2.20 Nehemía fer til Jerúsalem

3.1-7.73 Endurreisn múra Jerúsalem

8.1-10.39 Lögbókin lesin og skýrð, sáttmálinn endurnýjaður

11.1-13.3 Skrá yfir presta og Levíta. Vígsla borgarinnar

13.4−13.31 Önnur störf Nehemía