{"product_id":"book-zlfv","title":"Milljón steinar","description":"\u003cp\u003eÍ Milljón steinar og Hrollur í dalnum segir frá Heklu sjö ára. Hekla á systurina Kötlu, eins árs, og afar upptekna foreldra, enda á fullu í hinu svokallaða lífsgæðakapphlaupi. Sagan gerist þegar foreldrar systranna sjá færi á því að lyfta sér upp milli anna með því að fara í stutta ferð til Parísar. Ekki væsir heldur um Heklu og Kötlu, því að systurnar dvelja í góðu yfirlæti hjá afa og ömmu á Nornabjargi í Skessudal á meðan foreldrarnir eru í burtu.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eHekla er frísk stelpa með öflugt ímyndunarafl. Á þann eiginleika leikur afi til að forða því að hún fari sér að voða í ánni. Hann spinnur upp kyngimagnaða sögu í ljóðsagnastíl með öllu tilheyrandi, skrímslum, tröllum og huldufólki, og hvikar ekki eitt augnablik frá því að farið hafi verið með annað en berstrípaðan sannleikann.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eAmma fussar og sveiar, enda stendur hún ólíkt afa báðum fótum á jörðinni. Ömmu er ekkert sérstaklega um sveitina gefið og vildi miklu frekar stússast í búðinni sinni hjá Fjólu en að húka þar í öllum veðrum. Af augljósum ástæðum er Hekla því meiri afa- en ömmustelpa.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eKyngimagnaðar verurnar í sögu afa spretta ljóslifandi fram í hugskotsjónum hennar á meðan á sveitadvölinni stendur.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eHámarki nær atburðarásin þegar Hekla læðist út til að létta álögum af heimasætunni í Tungu um miðnætti eina nóttina. Henni tekst ætlunarverkið og farsæll endir virðist í sjónmáli þegar hinn misheppnaði veiðihundur Eyjólfur lendir í óvæntum hrakförum. Hann flækist í öngli veiðimanns og þarf að heimsækja dýralækni til að hljóta bót meina sinna.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eFrásögnin er skrifuð frá sjónarhóli Heklu og einkennist af frábæru innsæi og gætni nánast hvar sem borið er niður.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eHekla er afar lifandi og heilsteypt persóna frá höfundarins hálfu. Smáir atburðir geta virst stórir, atburðir rekið hvern annan, myndað æsispennandi atburðarás og ótrúlega ævintýraheima.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eStórskemmtilega og æsispennandi saga.\u003c\/p\u003e","brand":"INAudio","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":50500069130544,"sku":"BDzlfv","price":3.99,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/zlfv-cover.jpg?v=1767732910","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-zlfv","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}