{"product_id":"book-k785","title":"Fíasól og litla ljónaránið","description":"\u003cp\u003eManstu þegar mamma og Bidda systir fóru til Kaupmannahafnar að lyfta sér upp? \u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÞær fóru bara tvær. Pippa varð dálítið leið, en Fíasól varð öskureið.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eEn óvænt og alveg upp úr þurru fengu Fíasól og Pippa að koma á eftir þeim með ömmu Gógó í dálitla skemmtiferð. \u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÞær hittu Glóu frænku og Gutta strákinn hennar í Köben og heimsóttu Lóló afasystur. Svo gistu þær hjá Stínu stóru sem var næstum tannlaus magadansari. \u003c\/p\u003e\u003cp\u003eOg kannski manstu þegar Fíasól týndi húfunni í Tívolíinu og amma Gógó var göbbuð upp í hraðlest Óðins? Og svo fóru þau heim til Íslands eftir vel heppnaða skemmtiferð til Kaupmannahafnar. \u003c\/p\u003e\u003cp\u003eAuðvitað var það ekki sagan öll!\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÍ ferðinni gerðust fáránlegir atburðir sem fjölskyldan á ennþá erfitt með að segja frá. Fíasól á erfitt með það af því að hún skammast sín svo mikið. Amma, mamma og Glóa eiga erfitt með það af því að þær eru svo hneykslaðar á sjálfum sér. Pippa, Gutti og Bidda eiga erfitt með að tala um það af því að þeim finnst það ennþá svo heimskulegt. Pabbi á hinsvegar erfiðast með það af því að hann var ekki á staðnum og veit svo lítið hvað gerðist. \u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÞað er svo sannarlega kominn tími til að segja þessa sögu. \u003c\/p\u003e","brand":"INAudio","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49407671992624,"sku":"BDk785","price":4.15,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/k785-Square-cover.jpg?v=1781477936","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-k785","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}