{"product_id":"book-jc9z","title":"Nehemíabók","description":"\u003cp\u003eRitið sem kennt er við Nehemía hefur upphaflega verið hluti Esrabókar. Greint er frá för Nehemía til Jerúsalem en þangað var hann sendur af Persakonungi sem landstjóri í Júda. Síðan er fjallað um endurreisn múra Jerúsalem. Þá er sagt frá guðsþjónustu sem haldin var í borginni á laufskálahátíðinni en hún hafði verið endurreist af Júdamönnum. Í lýsingu á þessari guðsþjónustu koma fram nokkur höfuðatriði í guðsþjónustum Gyðinga í samkunduhúsum þeirra. Í síðasta hluta ritsins er fjallað um guðsþjónustuna og ýmsar aðgerðir til að hreinsa líferni safnaðarins. Áberandi einkenni ritsins er í hve ríkum mæli Nehemía setur traust sitt á Guð og hversu oft hann biður til hans.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting ritsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1–2.20 \u003c\/strong\u003eNehemía fer til Jerúsalem\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e3.1–7.73 \u003c\/strong\u003eEndurreisn múra Jerúsalem\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e8.1–10.39 \u003c\/strong\u003eLögbókin lesin og skýrð, sáttmálinn endurnýjaður\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e11.1–13.3 \u003c\/strong\u003eSkrá yfir presta og Levíta. Vígsla borgarinnar\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e13.4−13.31 \u003c\/strong\u003eÖnnur störf Nehemía\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402356171056,"sku":"BDjc9z","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617526-jc9z-Square.jpg?v=1735611076","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc9z","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}