{"product_id":"book-jc8o","title":"Daníel","description":"\u003cp\u003eDaníelsbók endurspeglar ofsóknir gegn Gyðingum er þeir voru kúgaðir og niðurlægðir af heiðnum konungi sem meðal annars vanhelgaði musterið í Jerúsalem og reisti þar „viðurstyggð eyðingarinnar“ (11.31), þ.e. altari Seifs. Daníelsbók er ekki spámannarit í eiginlegri merkingu þess orðs heldur opinberunarrit í líkingu við Opinberunarbókina í Nýja testamentinu og hefur sem slík sérstöðu meðal rita Gamla testamentisins. Daníelsbók er einnig sérstök að því leyti að hlutar hennar eru skrifaðir á arameísku (2.4–7.28) en aðrir hlutar á hebresku (1.1–2.4a og 8.–12. kafli).\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eBókin er ekki meðal spámannaritanna í hinum hebresku ritningum heldur er henni skipað aftarlega í flokk helgiritanna, milli Esterarbókar og Esra- og Nehemíabókar. Í grísku sjötíumannaþýðingunni er hún hins vegar á milli Esekíels og Hósea og því litið á Daníel sem einn af spámönnunum. Þessi mismunandi staðsetning bókarinnar sýnir að menn hafa löngum átt erfitt með að skipa henni í flokk. Áhrifamesti og þekktasti hluti ritsins er sýnin í 7. kafla þar sem talað er um einhvern er komi í skýjum og líkist mannssyni. Í Nýja testamentinu notar Jesús mannssonarhugtakið úr Dan 7.13 um sjálfan sig (sbr. Mrk 14.62). Í Apókrýfu bókunum er að finna viðauka við Daníelsbók.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting ritsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1–6.28\u003c\/strong\u003e Daníel og vinir hans\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e7.1–12.13\u003c\/strong\u003e Sýnir Daníels\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e7.1–7.28\u003c\/strong\u003e Dýrin fjögur\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e8.1–9.27\u003c\/strong\u003e Hrúturinn og geithafurinn\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e10.1–11.39\u003c\/strong\u003e Vitrun Daníels við Tígrisfljót\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e11.40–12.13\u003c\/strong\u003e Endalokin og upprisan\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402338509104,"sku":"BDjc8o","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617537-jc8o-Square.jpg?v=1735610831","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc8o","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}