{"product_id":"book-jc8k","title":"Esekíel","description":"\u003cp\u003eSpámaðurinn Esekíel var prestssonur sem hlaut köllun sína til spámanns meðal útlaganna frá Júda árið 593 f.Kr., þ.e. fyrir fall Jerúsalemborgar. Auk þess að flytja boðskap Drottins var Esekíel falið að vera „vörður Ísraels“ og með því gerður ábyrgur fyrir trúarlífi safnaðarins í útlegðinni í Babýlon.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eEsekíelritið er sett saman úr mjög ólíkum textum sem yfirleitt eru settir fram sem ávarp Drottins til spámannsins. Framsetning ritsins er fjölbreytt og má segja að þar komi fyrir flest þau bókmenntaform sem varðveitt eru í Gamla testamentinu. Myndmál og líkingar setja svip á ritið, svo og „prestlegt“ efni í stíl við 1.–4. Mósebók. Margar ræðurnar eru myndrænar og nokkrar þeirra hafa að geyma yfirlit yfir sögu Ísraels og Júda (t.d. 16. og 23. kafli).\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eEsekíel var falið að boða vilja Drottins, jafnvel fyrir daufum eyrum (2.5). Höfuðsyndin sem hann prédikaði gegn var guðleysi og afleiðingar þess, þjóðfélagslegt ranglæti. Söfnuður útlaganna í Babýlon gat því aðeins lifað að hann breytti eftir lögum Drottins og varðveitti þannig trú sína og siði. Sáttmálinn er grundvöllur skilnings Esekíels á sögu Ísraels, jafnt í fortíð, samtíð sem framtíð. Boð og bönn sáttmálans skilja líf frá dauða. Leiðin til lífs er leið laganna, hvort heldur er fyrir þjóðina (37. kafli) eða einstaklinginn (18. kafli).\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting ritsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1–3.27\u003c\/strong\u003e  Köllun Esekíels\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e4.1–24.27\u003c\/strong\u003e  Boðaður dómur yfir Júda og Jerúsalem\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e25.1–32.32\u003c\/strong\u003e Boðaður dómur yfir framandi þjóðum\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e33.1–37.28\u003c\/strong\u003e  Fyrirheit Guðs til þjóðar sinnar\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e38.1–39.29\u003c\/strong\u003e Spádómar gegn Góg\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e40.1–48.35\u003c\/strong\u003e Sýn um endurreisn musterisins\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402336051504,"sku":"BDjc8k","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617536-jc8k-Square.jpg?v=1735610807","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc8k","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}