{"product_id":"book-jc7z","title":"Jósúabók","description":"\u003cp\u003eRitið er kennt við Jósúa sem var eftirmaður Móse. Í fyrsta hluta ritsins eru frásagnir af innrás Ísraelsmanna í Kanaansland undir forystu Jósúa. Innrásin var gerð samkvæmt fyrirmælum Drottins sem grípur oft, beint og óbeint, inn í atburðarásina. Í frásögninni er lögð áhersla á hið yfirnáttúrlega.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eAnnar hluti ritsins segir frá skiptingu landsins milli ættbálkanna og fór hún fram með hlutkesti samkvæmt fyrirmælum Drottins (13.1–13.7). Í þriðja hluta (23. og 24. kafla) eru tvær kveðjuræður Jósúa þar sem hann fær þjóðina til að skuldbinda sig til að hlýða Drottni. Síðari ræðan tengist endurnýjun sáttmálans í Síkem.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eRitinu lýkur síðan með stuttri frásögn af dauða Jósúa og greftrun. Einn kunnasti hluti ritsins er frásögnin af falli Jeríkó (6. kafli).\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting ritsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1–12.24\u003c\/strong\u003e Landið unnið\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e13.1–22.34\u003c\/strong\u003e Landinu skipt\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e13.1–13.33\u003c\/strong\u003e Landið fyrir austan Jórdan\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e14.1–19.51\u003c\/strong\u003e Landið fyrir vestan Jórdan\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e20.1–20.9\u003c\/strong\u003e Stofnun griðaborga\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e21.1–21.45\u003c\/strong\u003e Borgir Levíta\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e22.1−22.34\u003c\/strong\u003e Um guðsdýrkun\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e23.1−23.16\u003c\/strong\u003e Kveðjuræða Jósúa\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e24.1−24.33\u003c\/strong\u003e Þingið í Síkem\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402331136304,"sku":"BDjc7z","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617516-jc7z-Square.jpg?v=1735610691","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc7z","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}