{"product_id":"book-jc5l","title":"Rutarbók","description":"\u003cp\u003eRutarbók er meðal þeirra fimm rita sem lesin voru á vissum hátíðum í samkunduhúsum Gyðinga (Rutarbók, Ljóðaljóðin, Prédikar-inn, Harmljóðin og Esterarbók). Í útgáfum Biblíunnar telst Rutarbók til sögurita og kemur á eftir Dómarabókinni, væntanlega vegna tímaákvörðunarinnar í upphafi bókarinnar. Hún er sögð gerast á stjórnartíð dómaranna (1.1) og segir frá móabískri stúlku, Rut, og trúfesti hennar við tengdamóður sína. Rut giftist inn í fjölskyldu frá Betlehem í Júda og varð að lokum ættmóðir Davíðs konungs. Baksvið sögunnar er öryggisleysi útlendings án jarðnæðis. Naomí óskar tengdadætrum sínum öruggrar afkomu og verður að ósk sinni þegar Rut eignast nýjan eiginmann („lausnarmann“) og hlýtur þar með öryggi og heimili.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting ritsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1–1.22\u003c\/strong\u003e Naomí og Rut halda til Betlehem\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e2.1–3.18\u003c\/strong\u003e Rut hittir Bóas\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e4.1–4.22\u003c\/strong\u003e Bóas kvænist Rut. Ættartala Davíðs\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402313179440,"sku":"BDjc5l","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617518-jc5l-Square.jpg?v=1735610264","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc5l","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}