{"product_id":"book-jc5i","title":"Harmljóðin","description":"\u003cp\u003eHarmljóðin voru löngum eignuð Jeremía. Þau eru lesin í samkunduhúsum Gyðinga á árlegri sorgarhátíð þeirra til minningar um eyðingu Jerúsalem og musterisins 587 f.Kr. Ljóðin lýsa neyð og örvæntingu þeirra sem drógu fram lífið í rústum Jerúsalem eftir hervirki sigurvegaranna sem höfðu flutt flesta íbúana í útlegð til Babýlonar. Harmljóðin eru að því leyti einstök heimild um sögu Ísraelsþjóðarinnar að þau ein greina frá hlutskipti þeirra sem eftir urðu í Júda við fall Jerúsalem.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÍ hebreska textanum er versunum raðað í stafrófsröð, að frátöldu fimmta ljóðinu. Ekki er ólíklegt að þetta form, bragarháttur ljóðanna, eigi að tákna að mælir harmanna sé fullur. Í hebreska stafrófinu eru tuttugu og tveir stafir og því er hver kafli tuttugu og tvö vers. Í 3. kafla eru þrjú vers um hvern staf svo að hann er sextíu og sex vers. Í ýmsum kirkjudeildum skipa Harmljóðin veglegan sess í helgihaldinu, t.d. á lönguföstu. Píslarsaga guðspjallanna vitnar beint í Harmljóðin og önnur rit Nýja testamentisins bergmála ljóðin óbeint í tilvitnunum.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting ritsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e1 Harmar Jerúsalem\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e2 Drottinn hegnir Jerúsalem\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e3 Hegning, iðrun, von\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e4 Jerúsalem eftir fall borgarinnar\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e5 Bæn um miskunn\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402312982832,"sku":"BDjc5i","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617535-jc5i-Square.jpg?v=1735610252","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc5i","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}