{"product_id":"book-jc5g","title":"Fimmta Mósebók","description":"\u003cp\u003eAlþjóðlegt heiti Fimmtu Mósebókar, Deuteronomium, er dregið af grísku og latnesku heiti bókarinnar og merkir „annað lögmál“. Er þá vísað til 5Mós 17.18 þar sem talað er um „afrit á bók af þessum lögum“ handa konunginum. Ritinu er skipt upp í ræður sem Móse flytur þjóðinni í Móabslandi þangað sem hún er komin eftir langa óbyggðagöngu og er í þann mund að halda inn í Kanaansland. Þá eru boðorðin tíu kynnt og sett fram með nokkuð öðrum hætti en í 2Mós 20.1–20.17. Þau eru eins konar lykill að hugmyndum, byggingu og málfari ritsins. Þannig er fyrsta boðorðið umritað og skýrt hvað eftir annað út frá ólíkum viðhorfum og aðstæðum.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÍ boðinu um að allt helgihald Ísraels skuli fara fram á einum helgistað, „staðnum sem Drottinn mun velja“ (12.5), er fólgin grundvallarregla og megintrúarhugmynd ritsins.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eFimmta Mósebók er sett fram eins og kennslubók í lögmáli Drottins. Móse er valinn af Drottni til að kenna það og er allt ritið lagt honum í munn nema nokkur vers í 31. og 34. kafla. Þekking á lögmálinu átti að verða til þess að fólkið lærði að virða Guð og boð hans svo að það uppskæri blessun hans.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eJósúa er kynntur sem næsti leiðtogi þjóðarinnar. Eftir að Móse hefur í ljóði lofað trúfesti Guðs deyr hann í Móabslandi austan við Jórdan.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eLykilvers ritsins eru í 6.4–6.6 og geyma þau orð sem Jesús kallaði æðst allra boðorða.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting ritsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1–4.49\u003c\/strong\u003e Fórnir frá Egyptalandi\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e5.1–26.19\u003c\/strong\u003e Boðun lögmálsins\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e5.1–10.22\u003c\/strong\u003e Boðorðin tíu\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e11.1–26.19\u003c\/strong\u003e Lög, reglur og viðvaranir\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e27.1–28.68\u003c\/strong\u003e Fyrirmæli um sáttmálshátíð\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e29.1–30.20\u003c\/strong\u003e Sáttmálinn endurnýjaður í Móab\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e31.1–33.29\u003c\/strong\u003e Síðustu orð Móse\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e34.1−34.12\u003c\/strong\u003e Móse deyr\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402312556848,"sku":"BDjc5g","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617515-jc5g-Square.jpg?v=1735610236","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc5g","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}