{"product_id":"book-jc5f","title":"Fjórða Mósebók","description":"\u003cp\u003eAlþjóðlegt heiti Fjórðu Mósebókar, Numeri, er sótt í latínu og merkir fjöldi eða tala og vísar til manntalsins sem Móse tók tvisvar meðal Ísraelsmanna, fyrst áður en þeir héldu frá Sínaífjalli og svo í Móabslandi fyrir austan Jórdan, nærri heilli kynslóð síðar. Í bókinni er rakin saga Ísraelsmanna á nærri fjörutíu ára göngu þeirra frá Sínaífjalli að austurlandamærum þess lands sem Drottinn hafði heitið þeim.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eFjórða Mósebók segir sögu fólks sem var oft og tíðum óttaslegið andspænis þeim erfiðleikum sem urðu á vegi þess og reis oft upp bæði gegn Guði og Móse sem hann hafði útvalið til að leiða fólkið inn í Kanaansland. Jafnframt vitnar bókin um trúfesti Guðs og umhyggju hans fyrir þjóð sinni. Engin Mósebóka hefur að geyma jafnfjölbreytilegt efni og Fjórða Mósebók.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting ritsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1–9.23\u003c\/strong\u003e Ísraelsmenn búast til brottfarar frá Sínaífjalli\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e10.1–21.35\u003c\/strong\u003e Frá Sínaífjalli til Móabslands\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e22.1–32.42\u003c\/strong\u003e Atburðir í Móab\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e33.1–33.49\u003c\/strong\u003e Áfangastaðir Ísraels á leið til Kanaanslands\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e33.50–34.29\u003c\/strong\u003e Fyrirmæli um skiptingu landsins vestan við Jórdan\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e35.1–35.34\u003c\/strong\u003e Borgir Levíta og griðaborgir\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e36.1–36.13\u003c\/strong\u003e Viðbót við erfðarétt kvenna\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402312425776,"sku":"BDjc5f","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617514-jc5f-Square.jpg?v=1735610229","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc5f","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}