{"product_id":"book-jc5e","title":"Ljóðaljóðin","description":"\u003cp\u003eVið fyrstu sýn hafa Ljóðaljóðin á sér yfirbragð ofurvenjulegs, veraldlegs ástarljóðs og margir álíta raunar að þannig verði ljóðið best skilið. Túlkun Ljóðaljóðanna í gyðingdómi og kristni var þó löngum með öðrum hætti. Þar var fremur miðað við langsótt líkingamál og trúarlegs boðskapar leitað í margræðni textans. Samkvæmt gyðinglegri hefð er hér ekki um að ræða ást af veraldlegum toga heldur ást Guðs á útvalinni þjóð sinni. Svipuð túlkun á sér langa hefð í kristni, en þar hafa samtölin í Ljóðaljóðunum einatt verið túlkuð sem tengsl Krists við kirkju sína eða samband hans og mannssálarinnar. Í hebresku ritningunum eru Ljóðaljóðin flokkuð með Rutarbók, Esterarbók, Harmljóðunum og Prédikaranum. Staðsetningu þeirra í okkar Biblíu má rekja til þess að þau eru kynnt sem verk Salómons og því raðað með öðrum ritum sem við hann eru kennd, þ.e. Orðskviðunum og Prédikaranum.\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402312360240,"sku":"BDjc5e","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617532-jc5e-Square.jpg?v=1735610225","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc5e","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}