{"product_id":"book-jc5d","title":"Dómarabókin","description":"\u003cp\u003eDómarabókin er kennd við tímabil dómaranna. Orðið er að því leyti misvísandi að starf dómaranna var ekki fyrst og fremst að dæma í málum manna heldur voru þeir leiðtogar sem kvaddir voru til þegar vá bar að höndum. Þeir voru kappar og bardagamenn sem reyndust leiðtogar þegar þjóðin þurfti á slíkri forystu að halda. Þess er aðeins getið um einn dómaranna, konuna í hópi þeirra, hina litríku Debóru, að hún hafi dæmt í málum manna (4.4–4.5).\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eDómaratímabilið hefst með landnámi Ísraelsmanna í Kanaanslandi (um 1200 f.Kr.) og lýkur þegar konungdæmi komst á í landinu (um 1000 f.Kr.). Sú guðfræði sem birtist í ritinu er að hlýðni við Drottin leiðir til blessunar og friðar en óhlýðni leiðir til örðugleika og ósigra. Dómarabókin greinir frá því hvernig þjóðin brýtur stöðugt gegn sáttmálanum við Guð. Í Dómarabókinni má greina ýmis bókmenntaform eins og sjá má af dæmisögu Jótams (9.7–9.12), gátu Samsonar (14.8–14.20) og Debóruljóðinu (5.1–5.31) sem ýmsir telja með elstu textum Gamla testamentisins.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting ritsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1–2.10\u003c\/strong\u003e Af landnámi Kanaans\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e2.11–16.31\u003c\/strong\u003e Dómarar Ísraels\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e17.1–21.25\u003c\/strong\u003e Lok dómaratímans\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402312294704,"sku":"BDjc5d","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617517-jc5d-Square.jpg?v=1735610223","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc5d","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}