{"product_id":"book-jc55","title":"Jóhannesarguðspjall","description":"\u003cp\u003eJóhannesarguðspjall er yngst guðspjallanna og hefur vissa sérstöðu meðal þeirra. Það er skylt öðrum Jóhannesarritum í Nýja testamentinu, Jóhannesarbréfunum og Opinberunarbókinni. Guðspjallið hefst á þeim boðskap að Jesús sé „logos“, hið skapandi orð Guðs, hans eilífa hugsun og speki í heiminn komin sem maður, hold (1.14). Hugtök eins og „líf“ og „eilíft líf“ og táknmyndir á borð við „vínvið“ og „brauð lífsins“ einkenna framsetningu guðspjallsins. Jesús er Guðs sonur, frelsarinn er veitir öllum líf (20.31). Ræður Jesú, kenning og bænir setja svip sinn á guðspjallið og að margra dómi er það áhrifamest guðspjallanna. Í 13.–17. kafla er lýst hinu nána kærleikssambandi Jesú og lærisveinanna. Hann hughreystir þá nóttina sem hann var svikinn og heitir þeim „hjálpara“, sínum heilaga anda, er veita muni þeim leiðbeiningu og styrk (15.26). Tákn Jóhannesar guðspjallamanns er örninn.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting guðspjallsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1−1.18\u003c\/strong\u003e Formáli: Jesús er eilíft orð Guðs sem gerðist maður\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.19−1.52\u003c\/strong\u003e Vitnisburður Jóhannesar skírara\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e2.1−12.50\u003c\/strong\u003e Starf Jesú í Galíleu og Jerúsalem, tákn, ræður, deilur\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e13.1−17.36\u003c\/strong\u003e Jesús býr lærisveina sína undir pínu sína og dauða\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e13.1−13.30\u003c\/strong\u003e Fótaþvotturinn, svik Júdasar\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e13.31−16.33\u003c\/strong\u003e Skilnaðarræða Jesú\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e17.1−17.26\u003c\/strong\u003e Fyrirbæn Jesú − Æðstaprestsbænin\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e18.1−19.42\u003c\/strong\u003e Pína Jesú, dauði og greftrun (píslarsaga Jóhannesar)\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e20.1−21.25\u003c\/strong\u003e Upprisa Jesú\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402310754608,"sku":"BDjc55","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617553-jc55-Square.jpg?v=1735610182","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc55","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}