{"product_id":"book-jc35","title":"Efesusbréfið","description":"\u003cp\u003eEfesusbréfið er hið fyrsta fjögurra fangelsisbréfa sem Páll skrifaði annaðhvort úr fangelsi sínu í Sesareu (sbr. Post 23.23), og þá um 58 e.Kr., eða í Róm (sbr. Post 28.26) og þá um 60. Hin fangelsisbréfin eru Filippíbréfið, Kólossubréfið og Fílemonsbréfið. Efesusbréfið flytur mikla kenningu og víðfeðma um eigind og eðli alls lífs á jörðu og á himnum. Guð hefur skapað allt líf og ákvarðað að í fyllingu tímans skyldi öll sköpun lúta Kristi. Þessi mikla heildarsýn um takmark allra veralda er grundvöllur hins kristna lífs er lifað skyldi í samræmi við guðsviljann, í kærleika og einingu andans (4.1–4.3). Efesusbréfið geymir margar myndrænar líkingar um kirkjuna og er kirkjan nefnd líkami (1.22−1.23), heimamenn Guðs (2.19), bygging (2.20), musteri (2.21), bústaður Guðs í heilögum anda (2.22) og brúður Krists (5.25). Kristur tengir allar þessar myndir saman. Það er hann sem blessar, sameinar og gefur kraftinn fyrir heilagan anda.\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402304364848,"sku":"BDjc35","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617559-jc35-Square.jpg?v=1735609830","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc35","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}