{"product_id":"book-jc34","title":"Fyrra Korintubréf","description":"\u003cp\u003eKorinta var mikil menningarborg og mátti þar finna trúarstefnur og lífsskoðanir af öllu tagi. Páll hafði stofnað söfnuð þar á árunum 49−52 e.Kr. er hann dvaldist þar í eitt og hálft ár í annarri kristniboðsferð sinni (Post 18.11). Af bréfum hans til safnaðarins má ráða að hinn ungi söfnuður hafi ekki valdið því að halda trú sinni við í því fjölþjóðaumhverfi sem ríkti í borginni án þess að sveigja til annarlegra hátta. Því voru alvarleg vandamál komin upp í söfnuðinum og að líkindum voru Páli kynnt vandamálin af mönnum sem söfnuðurinn sendi til hans þar sem hann var staddur í Efesus í þriðju kristniboðsferð sinni á árunum 53−57 (sbr. 16.17n). Deilurnar í söfnuðinum snerust um ýmis málefni, svo sem um kynlíf og hjúskap (5.–7. kafli), um heilaga kvöldmáltíð (11. kafli), um andagáfurnar (12.–14. kafli), um kristið líf í heiðinni borg o.s.frv. Páll leggur áherslu á hið sanna frelsi kristins manns og syngur kærleikanum hinn fræga óð í 13. kafla. Páll þreytir hér þá miklu frumraun að gera grein fyrir hinu kristna fagnaðarerindi eins og það birtist í grísku umhverfi. Hann bendir á grundvöll kenningarinnar í þeirri postullegu hefð sem Korintumenn eitt sinn veittu viðtöku og á upprisu Krists sem undirstöðu fagnaðarerindisins (15. kafli).\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting bréfsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1−1.9\u003c\/strong\u003e Inngangur, kveðjur\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.10−4.21\u003c\/strong\u003e Klofningur í söfnuðinum\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e5.1−6.20\u003c\/strong\u003e Ósiðlegur lifnaður\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e7.1−7.40\u003c\/strong\u003e Um hjónabandið\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e8.1−11.1\u003c\/strong\u003e Frelsi og ábyrgð kristins fólks\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e11.2−11.34\u003c\/strong\u003e Guðsþjónustan í söfnuðinum\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e12.1−14.39\u003c\/strong\u003e Náðargjafirnar\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e15.1−15.58\u003c\/strong\u003e Um upprisuna\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e16.1−16.24\u003c\/strong\u003e Kveðjur, hvatning til samskota fyrir söfnuðinn í Jerúsalem\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402304168240,"sku":"BDjc34","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617556-jc34-Square.jpg?v=1735609822","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc34","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}