{"product_id":"book-jc2o","title":"Filippíbréfið","description":"\u003cp\u003eFilippíbréfið hefur verið nefnt „bréf gleðinnar“ þótt Páll sé í fangelsi er hann ritar það. Söfnuðurinn í Filippí í Grikklandi var fyrsti söfnuðurinn sem Páll stofnaði í Evrópu (sbr. Post 16.11−16.16) og aðalerindi bréfsins var að þakka söfnuðinum fyrir gjöf sem hann hafði sent Páli. Jafnframt notar hann tækifærið til að hvetja söfnuðinn og minna hann á inntak fagnaðarerindisins því að villukenningar höfðu verið fluttar í Filippí. Gegn þeim setur hann fram höfuðsannindi fagnaðarerindisins í hnitmiðuðu máli og leggur áherslu á að Kristur sé líf trúaðs manns (1. kafli) og að niðurlæging Krists sé til eftirbreytni í auðmýkt og hlýðni (2. kafli). Postulinn hvetur menn til að gleðjast og fagna af því að Kristur veitir fólki von og styrk í öllum aðstæðum lífsins (3. og 4. kafli). Lofsöngurinn í 2.6−2.11 um tign Jesú sem menn eiga að trúa á er traust heimild um að frumkirkjan hafi trúað staðfastlega á fortilveru Krists.\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402302890288,"sku":"BDjc2o","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617560-jc2o-Square.jpg?v=1735609752","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc2o","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}