{"product_id":"book-jc2b","title":"Önnur Mósebók","description":"\u003cp\u003eAlþjóðlegt heiti Annarrar Mósebókar, Exodus, merkir brottför og vísar til mikilvægasta atburðarins í sögu Ísraels, þ.e. frelsunar Hebrea frá Egyptalandi þar sem þeir höfðu verið í ánauð. Bókin skiptist í fjóra meginhluta: (1) Frelsun hebresku þrælanna úr ánauðinni í Egyptalandi og köllun Móse þar sem Drottinn (Jahve) opinberar nafn sitt. (2) Ferð þeirra að Sínaífjalli undir forystu Móse. Þar gegnir hin undursamlega frelsun við Rauðahafið (Sefhafið) miklu hlutverki. (3) Sáttmáli Guðs og Ísraels við Sínaífjall. Sáttmálinn hafði að geyma siðferðislega og trúarlega löggjöf handa þjóðinni til að byggja líf sitt á. Guð skuldbindur sig um ævarandi náð og miskunn en fólkið skuldbindur sig um trúnað við Guð. (4) Bygging og skipan helgistaðar fyrir Ísrael ásamt reglum fyrir presta um helgihaldið.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÖðru fremur lýsir bókin því hvað Guð gerði er hann frelsaði hina ánauðugu Hebrea, gerði þá að þjóð og gaf þeim von að byggja á. Aðalpersóna ritsins er Móse, maðurinn sem Guð útvaldi til að leiða lýð sinn út af Egyptalandi. Þekktasti kafli bókarinnar er 20. kafli sem hefur að geyma boðorðin tíu.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eBrottförin af Egyptalandi er lykilatburðurinn í Mósebókum (Fimmbókaritinu) og yfirleitt talin marka upphaf Ísraels sem þjóðar. Exodus-atburðurinn var og túlkaður sem lykill að Guðsmynd Gyðinga. Páskar Gyðinga eru haldnir til að minnast þess atburðar.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting ritsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1–15.21\u003c\/strong\u003e Brottförin frá Egyptalandi\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1–1.22\u003c\/strong\u003e Þrælkun Ísraels\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e2.1–2.25\u003c\/strong\u003e Fæðing Móse og æska\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e3.1–4.31\u003c\/strong\u003e Köllun Móse\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e5.1–11.10\u003c\/strong\u003e Móse og Aron hjá faraó\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e12.1–15.21\u003c\/strong\u003e Páskarnir og brottförin frá Egyptalandi\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e15.22–18.27\u003c\/strong\u003e Frá Rauðahafi að Sínaífjalli\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e19.1–24.18\u003c\/strong\u003e Sáttmálinn á Sínaífjalli\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e25.1–40.38\u003c\/strong\u003e Fyrirmæli um helgidóm og guðsdýrkun\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402302136624,"sku":"BDjc2b","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617512-jc2b-Square.jpg?v=1735609688","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc2b","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}