{"product_id":"book-jc29","title":"Rómverjabréfið","description":"\u003cp\u003eRómverjabréfið er sendibréf, eins konar umburðarbréf sem Páll postuli sendi hinum kristna söfnuði í höfuðborg rómverska ríkisins er hann var á leið þangað veturinn 57−58. Hvergi hefur Páll gert fyllri grein fyrir kenningu sinni en einmitt í Rómverjabréfinu og er bréfið því efnismikið og þrungið krafti mikillar sannfæringar. Eins og önnur bréf Páls skiptist það í kenningarlegan hluta annars vegar og hvatningarhluta hins vegar.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003ePáll er söfnuðinum ókunnugur nema af afspurn þar sem hann er ekki stofnandi hans. Hann hefur haft spurnir af því að mönnum sé ekki að fullu ljóst samband gyðingdóms og kristindóms og spenna ríki milli gyðingkristinna og heiðinkristinna í Róm. Því snýst bréfið að verulegu leyti um höfuðatriði gyðingdóms: réttlætinguna af trúfesti við lögmálið. Gegn þeirri kenningu setur Páll fram kenninguna um réttlætinguna af trúnni einni saman fyrir náð Guðs. Þá kenningu sækir hann í Biblíu frumkirkjunnar, Gamla testamentið, er hann túlkar í ljósi Krists. Páll boðar hér nýtt samband við Guð í persónu Jesú Krists er hinn trúaði hefur verið leystur undan valdi dauðans og hins illa með krafti heilags anda í lífi sínu, hinu nýja lífi í Kristi. Í niðurlagsköflum bréfsins, hvatningarhlutanum, fjallar Páll um þá þýðingu sem hið nýja líf andans hafi fyrir samlíf manna og leggur áherslu á kærleikann og ábyrgð kristins manns.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting bréfsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1−1.17\u003c\/strong\u003e Inngangur, tilgangur bréfsins skýrður\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.18−11.36\u003c\/strong\u003e Kenningarlegur hluti bréfsins\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.18−5.21\u003c\/strong\u003e Hjálpræði boðast öllum mönnum sakir náðar Guðs\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e6.1−8.39\u003c\/strong\u003e Hið nýja líf í trúnni á Krist og krafti heilags anda\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e9.1−11.36\u003c\/strong\u003e Afstaða til Gyðinga\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e12.1−16.27\u003c\/strong\u003e Hvatningarhluti bréfsins\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e12.1−15.13\u003c\/strong\u003e Ávextir trúarinnar í nýju lífi\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e15.14−16.27\u003c\/strong\u003e Fyrirætlanir Páls, kveðjur og blessunarbænir\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402302103856,"sku":"BDjc29","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617555-jc29-Square.jpg?v=1735609688","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc29","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}