{"product_id":"book-jc28","title":"Fyrri konungabók","description":"\u003cp\u003eÍ Fyrri konungabók er haldið áfram frásögninni af konungdæmi Ísraels sem hófst í Samúelsbókum. Hún skiptist í þrjá meginhluta. (1) Upphaf konungdæmis Salómons og andlát Davíðs, föður hans. (2) Stjórnarár Salómons. Þar er áherslan einkum á byggingu musterisins. (3) Nýr klofningur ríkisins í Norður- og Suðurríki og frásögn af konungunum fram á miðja 9. öld f.Kr. Í báðum konungabókunum eru konungarnir dæmdir eftir afstöðunni til Drottins og laga hans. Sá sem brýtur gegn lögunum kallar bölvun yfir sig og þjóðina. Bókunum er ætlað að leiða í ljós að fall Ísraelsríkis var afleiðing af stjórnarstefnu konunganna. Inn í sögu þeirra er fléttað viðamiklum þáttum um líf og starf spámannanna Elía og Elísa og annarra guðsmanna (17.–19. kafli). Þeir vara þjóðina við skurðgoðadýrkun og óhlýðni við Drottin.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting ritsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1–2.12\u003c\/strong\u003e Átök um konungdæmi Davíðs\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e2.13–2.46\u003c\/strong\u003e Salómon festir sig í sessi\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e3.1–11.43\u003c\/strong\u003e Stjórnarár Salómons konungs\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e12.1–22.53\u003c\/strong\u003e Konungsríkin tvö\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e12.1–14.20\u003c\/strong\u003e Konungdæmið klofnar\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e14.21–16.34\u003c\/strong\u003e Konungar Júda og Ísraels\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e17.1–19.21\u003c\/strong\u003e Elía spámaður\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e20.1–22.40\u003c\/strong\u003e Stjórnarár Akabs og andlát\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e22.41–22.53\u003c\/strong\u003e Jósafat Júdakonungur og Ahasía Ísraelskonungur\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402302071088,"sku":"BDjc28","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617521-jc28-Square.jpg?v=1735609685","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc28","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}