{"product_id":"book-jc21","title":"Jobsbók","description":"\u003cp\u003eMargir telja Jobsbók meðal snilldarverka heimsbókmenntanna. Hún fjallar um vandamál þjáningarinnar og hins illa. Hví þjáist hinn réttláti?\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÍ bókinni er sögð saga góðs og guðhrædds manns sem má þola hinar mestu þjáningar. Hann missir öll börn sín og eigur sínar og má að auki þola alvarlegan líkamlegan sjúkdóm. Í þremur ljóðabálkum bókarinnar eru samtöl Jobs og vina hans. Job heldur staðfastlega fram sakleysi sínu og deilir á Guð fyrir þær þjáningar sem hann hefur mátt þola. Vinir hans eru fulltrúar „rétttrúnaðarins“ og halda því fram að ófarir Jobs hljóti að stafa af synd hans. Þeir trúðu þeirri kenningu að réttlátum mönnum mundi farnast vel en óguðlegum að sama skapi illa (sbr. Slm 1). Job missir ekki trú sína en sækir fast að verða réttlættur af Guði og endurheimta heiður sinn sem góður og réttlátur maður. Guð gefur ekki svör við þeim spurningum sem Job ber fram en sýnir honum hins vegar fram á sköpunarmátt sinn og vísdóm. Lausnina virðist Job finna í guðssamfélaginu (42.5).\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eFormáli og eftirmáli bókarinnar skera sig mjög úr meginhluta hennar sem er allur í bundnu máli og í formi samræðna og\/eða deilna.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting ritsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1–2.13 \u003c\/strong\u003eFormáli\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e3.1–31.40 \u003c\/strong\u003eJob og vinir hans\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e3.1–3.26 \u003c\/strong\u003eAngurljóð Jobs\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e4.1–14.22\u003c\/strong\u003e Fyrsti ræðukafli\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e15.1–21.34\u003c\/strong\u003e Annar ræðukafli\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e22.1–27.23 \u003c\/strong\u003eÞriðji ræðukafli\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e28.1–28.28 \u003c\/strong\u003eLjóð um spekina\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e29.1–31.40 \u003c\/strong\u003eLokaræða Jobs\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e32.1–37.24 \u003c\/strong\u003eRæður Elíhú\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e38.1–42.6  \u003c\/strong\u003eSamtal Guðs og Jobs\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e42.7–42.17\u003c\/strong\u003e Eftirmáli\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402300793136,"sku":"BDjc21","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617528-jc21-Square.jpg?v=1735609655","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jc21","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}