{"product_id":"book-jbzl","title":"Fyrsta Mósebók","description":"\u003cp\u003eAlþjóðlegt heiti Fyrstu Mósebókar, Genesis, merkir upphaf, sköpun eða tilurð. Í henni er fjallað um sköpun heimsins, uppruna mannkyns og upphaf syndar og þjáningar í heiminum. Sagt er frá frumþjóðum heimsins og hvernig Guð kom til móts við Hebrea. Fyrirheit Guðs til ættfeðra Ísraelsþjóðarinnar eru snar þáttur í bókinni en hún fjallar öðru fremur um afskipti Guðs af mönnum við margvíslegar aðstæður. Segja má að Guð fari með aðalhlutverkið í bókinni allri. Hann leiðir ættfeður hinnar útvöldu þjóðar, hjálpar henni í nauðum og dæmir og refsar þeim sem ranglega breyta. Jafnvel þótt Guð virðist í fljótu bragði ekki koma mikið við sögu í Jósefssögunni (35.–50. kafla) birtist lykilatriði hennar í 50.20 þar sem segir: „Þið ætluðuð að gera mér illt en Guð sneri því til góðs. Hann vildi gera það sem nú er orðið og þannig varðveita líf margra.”\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eSkipting ritsins\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e1.1–2.5\u003c\/strong\u003e Sköpun heims og mannkyns\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e3.1–3.24\u003c\/strong\u003e Upphaf syndar og þjáningar\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e4.1–5.32\u003c\/strong\u003e Frá Adam til Nóa\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e6.1–10.32\u003c\/strong\u003e Nói og flóðið\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e11.1–11.9\u003c\/strong\u003e Babelturninn\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e11.10–11.31\u003c\/strong\u003e Frá Sem til Abrams\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e12.1–35.29\u003c\/strong\u003e Ættfeðurnir: Abraham, Ísak og Jakob\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e36.1−36.43\u003c\/strong\u003e Niðjatal Esaú og Edómíta\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e37.1–45.28\u003c\/strong\u003e Jósef og bræður hans\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e46.1–50.26 \u003c\/strong\u003eÍsraelsmenn í Egyptalandi\u003c\/p\u003e","brand":"Findaway World, LLC","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49402291716400,"sku":"BDjbzl","price":2.0,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/617511-jbzl-Square.jpg?v=1735609289","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-jbzl","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}