{"product_id":"book-ja7m","title":"Fíasól á flandri","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eUm bókina:\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eFíasól er átta ára gamall ferðalangur og óskabarn sem lendir í einhverju fjörugu á hverjum degi. Hér útvegar hún fjölskyldunni einkaþjón, kallar saman nokkra viðskiptarisa til styrktar góðu málefni, hittir næstum því forsetann og bregður sér í ævintýraferð til útlanda.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÚr Fíusól á flandri:\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eBíddu við, sagði Fíasól við mömmu. Ætlar þú þá að taka peningana sem við Pippa eigum að fá fyrir flöskurnar?\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e Nei, sagði mamma og brosti. Ég borga ykkur út af reikningnum mínum. Hvað skulda ég henni? spurði mamma.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e Ekki neitt, sagði maðurinn brosandi.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e Jú, sjáðu til, sagði mamma. Hún á flöskupeningana og ég þarf að fá að vita hvað ég skulda henni.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eAuðvitað skuldar hún mér. Það er ég sem á þessa peninga sem þú setur inn á reikninginn hennar. Ég og systir mín.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e Maðurinn leit fast á Fíusól.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e Nei, þú skuldar mömmu þinni.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e Ha? Ertu eitthvað lélegur í reikningi? sagði Fíasól með þjósti.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÞú skuldar henni mömmu þinni því hún gaf þér lífið sjálft og er að koma þér til manns. Hún fæðir þig og klæðir og gefur þér þak yfir höfuðið, öryggi og skjól, ást og umhyggju, sagði hann og horfði sigri hrósandi á Fíusól.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e Mamma brosti í laumi þegar hún sá svipinn á Fíusól. Stelpan sú varð í fyrsta skipti á ævinni orðlaus og strunsaði út í bíl.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e Þú skuldar mér nú samt, er það ekki, mamma? sagði Fíasól blíðlega þegar þær óku af stað.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e Jú, auðvitað, sagði mamma. Ég fékk miða hjá manninum og ég lofa að borga þér fljótlega.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e Fíasól sat þögul í bílnum á leiðinni heim.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eMamma, ég borga þér til baka alla daga, sagði hún hugsi þegar þær komu heim. Ég meina fyrir lífið, matinn og þakið. Ég borga þér með því að vera skemmtileg, góð og yndisleg og með því að vera vinkona þín, er það ekki?\u003c\/p\u003e","brand":"INAudio","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49451919671600,"sku":"BDja7m","price":7.09,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/ja7m-Square-cover.jpg?v=1773610569","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-ja7m","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}