{"product_id":"book-g8xk","title":"Mói hrekkjusvín","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e\u003cu\u003eMói - Hrekkjusvín eða misskilinn snillingur\u003c\/u\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eFlestir snillingar mannkynssögunnar hafa verið misskildir. Í raun hefur enginn kunnað að meta þá fyrr en þeir eru löngu dauðir. Það segir pabbi að minnsta kosti. Ég held að ég sé einn af þeim.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eMói hrekkjusvín er eyrnastór götustrákur sem heitir reyndar fullu nafni Marteinn Jörundur Marteinsson. Besti vinur hans, Byssu-Jói, risavaxinn leynikúreki og verndari Móa, er aldrei langt undan, nagar puntstrá, tyggur tóbak og segir: „Ó boj, MÓI!\".\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eMói fær óteljandi hugmyndir, flestar frábærar og aðeins örfáar sem eru ekkert sérstakar. Hann reynir að sigla á ísjaka til Ameríku og búa til heimagerð nagladekk. Stundum er svo mikið að gera hjá honum að hann gleymir skólatöskunni í skólanum.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eStundum bjargar hann lífi fólks hinu megin á hnettinum en samt fara allir á taugum þegar hann skrúfar í sundur raftæki eða hristir nokkra gosflöskur.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eEinu sinni á ári fá allar mömmur hrekkjusvína á Íslandi nóg af þeim. Þá senda þær villingana sína á landsmót hrekkjusvína við Jötnatjörn. Mömmurnar hvíla sig og hrekkjusvínin læra bænir og góða siði.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003eÞegar Mói hrekkjusvín, Orri prestsins og Byssu-Jói fara á kreik getur hvað sem er gerst, draugar fara á stjá í kirkjunni, peningar hverfa úr söfnunarbauknum og moldríkir kúrekar gera allt vitlaust í bíó. Allir þrír hlakka til að fara á landsmót hrekkjusvína við Jötnatjörn og á meðan er rólegt í bænum.\u003c\/p\u003e","brand":"INAudio","offers":[{"title":"Audiobook","offer_id":49417577464112,"sku":"BDg8xk","price":8.93,"currency_code":"USD","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0879\/2784\/9264\/files\/g8xk-Square-cover.jpg?v=1773475811","url":"https:\/\/downpour.com\/products\/book-g8xk","provider":"Downpour","version":"1.0","type":"link"}